Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   mið 20. maí 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fyrrum íþróttastjóri Barca á leið aftur til Evrópu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Ramón Planes, fyrrum yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona, er á leið aftur til Evrópu eftir tvö og hálft ár hjá Al-Ittihad.

Planes starfaði í stjórn Barcelona í þrjú og hálft ár áður en hann samdi við félagið um starfslok þar sem hann taldi sig þurfa á nýrri áskorun að halda. Mateu Alemany og Jordi Cruyff tóku við starfi Planes hjá Barcelona áður en Deco var loks ráðinn sumarið 2023.

Planes starfaði hjá Getafe og Real Betis við góðan orðstír áður en Al-Ittihad greiddi upp riftunarákvæðið í samningi hans við Betis í janúar 2024.

Planes er spenntur fyrir að snúa aftur til Evrópu og er AS Roma talið leiða kapphlaupið um að tryggja sér þjónustu hans, þó að endurkoma til Real Betis komi einnig sterklega til greina.

Al-Ittihad er þá í leit að nýjum yfirmanni fótboltamála og er Medhi Benatia efstur á óskalistanum. Benatia, sem lék meðal annars fyrir FC Bayern og Juventus á ferli sínum sem fótboltamaður, hefur ákveðið að yfirgefa starf sitt sem yfirmaður fótboltamála hjá Marseille.

   23.02.2022 11:00
Fengu Pedri ótrúlega ódýrt

Slapp
banner
banner