Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 17:35
Elvar Geir Magnússon
Rangnick tekur Arnautovic með á HM
Marko Arnautovic og Marcel Sabitzer.
Marko Arnautovic og Marcel Sabitzer.
Mynd: EPA
Ralf Rangnick.
Ralf Rangnick.
Mynd: EPA
Marko Arnautovic, fyrrum leikmaður Stoke og West Ham, er í austurríska landsliðshópnum fyrir HM. Þetta verður fyrsta heimsmeistaramót Austurríkis í 28 ár.

Arnautovic er 37 ára og spilar í dag fyrir Rauðu stjörnuna í Belgrad. Hann hefur skorað 47 mörk í 132 leikjum fyrir Austurríki.

Ralf Rangnick, fyrrum stjóri Manchester United, stýrir austurríska landsliðinu en liðið er með Argentínu, Alsír og Jórdaníu í riðli á HM.

Austurríski HM hópurinn:

Markverðir: Patrick Pentz (Brondby), Alexander Schlager (RB Salzburg), Florian Wiegele (Viktoria Pilsen)

Varnarmenn: David Affengruber (Elche), David Alaba (Real Madrid), Kevin Danso (Tottenham), Marco Friedl (Werder Bremen), Philipp Lienhart (Freiburg), Phillipp Mwene (Mainz), Stefan Posch (Mainz), Alexander Prass (Hoffenheim), Michael Svoboda (Venezia)

Miðjumenn: Christoph Baumgartner (RB Leipzig), Carney Chukwuemeka (Borussia Dortmund), Florian Grillitsch (Braga), Konrad Laimer (Bayern München), Marcel Sabitzer (Borussia Dortmund), Xaver Schlager (RB Leipzig), Romano Schmid (Werder Bremen), Alessandro Schopf (RZ Pellets WAC), Nicolas Seiwald (RB Leipzig), Paul Wanner (PSV Eindhoven), Patrick Wimmer (Wolfsburg)

Sóknarmenn: Marko Arnautovic (Red Star Belgrade), Michael Gregoritsch (Augsburg), Sasa Kalajdzic (LASK)

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner