„Tilfinningarnar eru bara mjög góðar og ég er bara hrikalega sáttur með liðið," sagði Alexander Aron Davorsson, þjálfari Aftureldingar eftir 3-1 sigur á Grindavík í Lengjudeild kvenna í kvöld.
„Mér fannst við frábærar fyrstu 30 mínúturnar, síðan hleyptum við þeim full kæruleysislega inn í leikinn en þær eru með tvær eldsnöggar frammi sem eru bara ótrúlega góðar og þær refsuðu okkur allavega einu sinni í dag. En bara hrós á þennan leik, fannst þetta frábær fótboltaleikur, lið sem vildu halda í boltann, sótt á mörgum mönnum og bara skemmtilegt að horfa á þennan leik í Mosó."
Lestu um leikinn: Afturelding 3 - 1 Grindavík
Dominiqe Evangeline Bond-Flasza leikmaður Grindavíkur fékk að líta rauða spjaldið á 42. mínútu eftir að hún braut á Hildi Kristínu Gunnarsdóttur.
„Ég veit það ekki, gult eða rautt ég veit það ekki. Hún sparkar eitthvað til hennar ég sá það ekki. En auðvitað hefði ég viljað vinna þetta bara 11 á móti 11 og við hefðum gert það líka en það er auðvitað erfitt fyrir Grindavík að vera einum færri. En það er stundum erfitt að spila á móti þannig liði sem eru með 10 alveg kolvitlausar í seinni hálfleik en við náðum svona að halda vel í boltann án þess að skapa okkur eitthvað en síðan undir lokin þá skorum við þriðja markið og þá var þetta svona komið."
Með sigrinum fer Afturelding í 23 stig og blandar sér í toppbaráttuna sem er þétt.
„Ég held að það séu öll lið hrædd við Aftureldingu sko, ég held það sé þannig og við erum ótrúlegt lið. Maður veit það ekki stundum sjálfur hvernig liðið verður og hvernig við mætum til leiks."
Nánar er rætt við Alexander í spilaranum hér fyrir ofan þar sem hann ræðir meðal annars sumarið, næsta leik hjá Aftureldingu og það sem er framundan hjá honum í sumar sem leikmaður.
























