Eins og fram kom í gær, þá vill Bryan Mbeumo fara til Manchester United. Áreiðanlegustu miðlarnir á Englandi segja frá þessu.
Samkvæmt Sky Sports er búist við því að Man Utd muni setja sig í samband við Mbeumo í þessari viku og fara í viðræður um leikmanninn.
Samkvæmt Sky Sports er búist við því að Man Utd muni setja sig í samband við Mbeumo í þessari viku og fara í viðræður um leikmanninn.
Mbeumo er leikmaður sem United hefur dást að lengi og er hann talinn henta vel í leikkerfi Rúben Amorim.
Brentford er tilbúið að hlusta á tilboð í leikmanninn sem þeir meta á meira en 60 milljónir punda.
Þessi öflugi framherji átti stórkostlegt tímabil í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann skoraði 20 mörk í 38 leikjum.
Athugasemdir