38. Pollamót Þórs og Samskipa fer fram á Þórssvæðinu á Akureyri dagana 4. og 5. júlí og er skráning í fullum gangi.

Dagskrá Pollamótsins 2025 verður svipuð og undanfarin, þ.e.a.s. fótbolti á daginn og partý á kvöldin.
Fótboltinn verður með hefðbundnu sniði, spilað um það bil frá kl 9-18 á föstudag og 9-17 á laugardag.
Úrslitaleikir í deildum verða spilaðir á bilinu kl. 14-17 á laugardag.
Leikið er í fjórum aldursflokkum karla (28 ára og eldri upp í 50 ára og eldri) og þremur aldursflokkum kvenna (20 ára og eldri upp í 35 ára og eldri).
Á laugardagskvöldið verður risa ball í Boganum þar sem meðal annars Skítamórall og Herbert Guðmundsson stíga á stokk.
Skráningar fara fram á vef mótsins. Fyrir þá sem vilja senda inn fyrirspurnir er bent á netfang mótsins: [email protected].
Skráningarfrestur er til 30. júní en boðið er upp á forsöluverð til 5. júní.
Athugasemdir