Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Roma vill kaupa einn af bestu leikmönnum Norwich
Mynd: Heimasíða Norwich City
Mynd: EPA
Ítalski fréttamaðurinn Gianluca Di Marzio greinir frá því að ítalska stórliðið AS Roma sé að reyna að kaupa Josh Sargent frá Norwich City.

Roma er að ráða Gian Piero Gasperini sem aðalþjálfara og er Sargent meðal efstu manna á lista.

Roma endaði í fimmta sæti undir stjórn Claudio Ranieri á nýliðnu tímabili en hann er hættur í þjálfun eftir rétt tæplega 40 ár í þjálfun. Ranieri er 73 ára gamall og hefur meðal annars stýrt Chelsea og Atlético Madrid á mögnuðum þjálfaraferli, auk þess að hafa þjálfað nánast öll stærstu lið ítalska boltans og unnið ótrúlegan úrvalsdeildartitil með Leicester City.

Sargent leikur sem framherji og er með þrjú ár eftir af samningi sínum við Norwich. Hann hefur komið að 38 mörkum með beinum hætti í síðustu 63 keppnisleikjum fyrir félagið.

Sargent er 25 ára gamall og leikur fyrir bandaríska landsliðið. Hann var valinn í lið ársins í ensku Championship deildinni á nýliðnu tímabili.

Norwich er talið vilja um 15 til 20 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Norwich endaði um miðja Championship deild á vonbrigðatímabili fyrir félagið.

Norwich lék síðast í úrvalsdeildinni tímabilið 2021-22 en félagið hefur verið duglegt að flakka á milli efstu deilda enska boltans á undanförnum áratugi.
Athugasemdir
banner
banner