Chelsea er að skoða kantmanninn efnilega Jamie Bynoe-Gittens fyrir sumargluggann á félagaskiptamarkaðinum. Sky Sports greinir frá.
Gittens er 20 ára gamall Englendingur sem hefur spilað 106 leiki fyrir aðallið Borussia Dortmund á ferlinum.
Dortmund fékk hann úr röðum Manchester City fyrir fimm árum síðan og er kantmaðurinn metinn á 50 milljónir punda. Hann er mikilvægur hlekkur í U21 landsliði Englendinga.
Það hjálpar Chelsea að Gittens er ekki lengur með fast byrjunarliðssæti í sterku liði Dortmund.
Gittens, sem verður 21 árs í ágúst, kom að 17 mörkum í 48 leikjum með Dortmund á nýliðnu tímabili.
Chelsea er í leit að kantmanni og öðrum sóknarmanni eftir kaup á Liam Delap sem verður kynntur sem nýr leikmaður félagsins á næstu dögum.
Athugasemdir