Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 18:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Laugardalsvelli
Svona lítur nýja grasið á Laugardalsvellinum út
Icelandair
EM KVK 2025
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Núna er hafinn leikur Íslands og Frakklands í Þjóðadeild kvenna. Leikið er á nýja hybrid-grasinu á Laugardalsvelli.

Það má með sanni segja að völlurinn líti glæsilega út. Haukur Gunnarsson, ljósmyndari, er á vellinum og tók þessar myndir sem fylgja með fréttinni.

Lestu um leikinn: Ísland 0 -  2 Frakkland

Einnig er búið að færa völlinn nær nýju stúkunni og eru breytingarnar augljósar fyrir fólk á vellinum.

Um er að ræða síðasta heimaleik Íslands fyrir EM en mikilvægi hans er mikið þar sem góður árangur í Þjóðadeildinni skiptir máli fyrir undankeppni HM.

Hægt er að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Fótbolta.net.
Athugasemdir
banner