Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Atli Viðar: FH er háðara Birni Daníel en ég gerði mér grein fyrir
Björn Daniel er besti leikmaður FH.
Björn Daniel er besti leikmaður FH.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Úlfur Ágúst skoraði gegn ÍBV en spilaði aftar gegn Aftureldingu.
Úlfur Ágúst skoraði gegn ÍBV en spilaði aftar gegn Aftureldingu.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björn Daníel Sverrisson, fyrirliði FH, byrjaði á bekknum gegn Aftureldingu í 10. umferð Bestu deildarinnar á sunnudag. Björn Daníel er 35 ára miðjumaður og er besti fótboltamaðurinn í liði FH.

FH liðið virtist sakna Björns í leiknum, en þetta var þriðji leikur liðsins á viku. FH mætti Breiðabliki 25. maí, ÍBV 29. maí og svo Aftureldingu 1. júní. Rætt var um FH og Björn Daníel í Innkastinu þar sem FH goðsögnin Atli Viðar Björnsson var sérstakur gestur.

Lestu um leikinn: FH 0 -  0 Afturelding

„Heimi var aðeins að hvíla Björn Daníel og hreyfði Úlf (setti hann) aftar, mér fannst skiljanlegt að Björn Daníel byrjaði ekki þennan leik, en FH liðið er háðara Birni Daníel en ég gerði mér grein fyrir. Það var ekkert að frétta."

„Ég er pínu svekktur út í Heimi að hafa ekki spilað Úlfi aftur uppi á topp, hann skoraði í Eyjum og mér finnst alltof mikið rót á framherjastöðunni hjá FH, held það séu fjórir menn búnir að byrja frammi í þessum tíu leikjum. FH vantar einhvern sem getur skorað mark, markahæstu menn eru með tvö mörk, en að vera í tíu leikjum með tvö mörk er full lítið fyrir minn smekk. Það er margt sem hægt er að svekkja sig á þegar maður horfir í þennan leik,"
sagði Atli Viðar.

Erfið byrjun, góður viðsnúningur en kolféllu svo á prófinu
En hver er skoðun Atla Viðars á tímabilinu hjá FH til þessa?

„Mér finnst það búið að vera sveiflukennt, vægast sagt, byrjaði illa og mér leist ekkert á þetta fyrstu fjóra leikina. Eftir leikinn á móti Val, góður sigur í Kaplakrika, þá fannst mér allt breytast. Úlfur var kominn og ég sá að Björn Daníel og Úlfur tengdu vel saman. Það var kominn uppspilspunktur og allt gekk betur, það kviknaði á Kjartani Kára á þessum sama tíma. Þrátt fyrir tap í Víkinni var það alls ekkert afleit frammistaða. Það komu svo sigrar gegn Breiðabliki og Skaganum."

„Eftir sigurinn á móti Blikum, Böðvar fer í frægt viðtal þar sem hann segir að markmiðið sé Evrópusæti, koma tveir leikir á móti nýliðum; ÍBV úti og Afturelding heima. Þeir fá eitt stig. Þetta voru 'statement' leikir fyrir þetta FH lið og fyrir mér kolfalla þeir á því prófi. Það má alveg segja að FH hafi verið með spennandi lið gegn Aftureldingu, 23 ára meðalaldur og ungir menn í mörgum stöðum, en það er bara ef þú vilt sjá glasið hálffullt, því FH liðið var ekki merkilegt,"
sagði Atli Viðar.

Getur hann fengið að standa á miðjunni?
Rætt var um Björn Daníel í Stúkunni á Stöð 2 Sport.

„Ég er kominn á þá skoðun að mér alveg sama hversu þreyttur Björn Daníel er, hann bara verður að vera inn á í þessu liði. Þeir eru með nóg af stórum og öflugum kraftastrákum til að hlaupa og berjast. En þú þarft verkamenn og listamenn í liðið, þeir eru bara ekki með nóg af listamönnum. Hann er þeirra listamaður og leyfðu honum bara að standa þarna, fá boltann annað slagið," sagði Lárus Orri Sigurðsson í þættinum.

„Ef horft er í reynsluna þá skiptir Björn Daníel máli, hann er einhvers konar kúltúrberi í þessum hóp og skiptir þá miklu máli. Ég veit ekki hvert ástandið á honum er, en að hafa hann til staðar skiptir þá máli," sagði Ólafur Kristjánsson.
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 6 2 2 19 - 11 +8 20
2.    Breiðablik 10 6 1 3 17 - 16 +1 19
3.    Valur 10 5 3 2 22 - 13 +9 18
4.    Vestri 10 5 1 4 12 - 7 +5 16
5.    Stjarnan 10 4 2 4 17 - 18 -1 14
6.    ÍBV 10 4 2 4 12 - 15 -3 14
7.    KR 10 3 4 3 28 - 23 +5 13
8.    Fram 10 4 0 6 16 - 17 -1 12
9.    KA 10 3 3 4 10 - 17 -7 12
10.    FH 10 3 2 5 15 - 14 +1 11
11.    Afturelding 10 3 2 5 8 - 13 -5 11
12.    ÍA 10 3 0 7 12 - 24 -12 9
Athugasemdir
banner
banner
banner