Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Dregur sig úr U21 landsliðshópnum vegna álags
Mynd: EPA
Fermin Lopez, leikmaður Barcelona og spænska landsliðsins, hefur ákveðið að draga sig úr U21 landsliðshópnum fyrir EM í sumar.

Hann hefur ákveðið að gera það af persónulegum ástæðum en hann telur álagið vera orðið of mikið.

Hann var einnig valinn í A-landsliðið fyrir úrslitakeppnina í Þjóðadeildinni en Spánn mætir Frakklandi á fimmtudaginn í undanúrslitum og Þýskalandi eða Portúgal í úrslitum þann 8. júní ef liðið kemst þangað.

„Ég hef verið að stanslaust í tvö ár og maður verður að hlusta á líkamann. Ég var spenntur fyrst en að lokum komumst við að samkomulagi. Ég ræddi við Snati Denia (þjálfara U21) og hann skildi mig fullkomlega. Ég kann að meta traustið sem hann gaf mér," sagði Lopez.
Athugasemdir
banner