Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rangers að ganga frá ráðningu á nýjum stjóra
Russell Martin.
Russell Martin.
Mynd: EPA
Skoska félagið Rangers er að ganga frá ráðningu á nýjum stjóra. Fabrizio Romano segir að Russell Martin komi til með að verða næsti stjóri liðsins.

Margir hafa verið orðaðir við starfið og þar á meðal Steven Gerrard og Davide Ancelotti, sonur Carlo Ancelotti.

En það verður að öllum líkindum Russell Martin sem tekur við starfinu. Hann er búinn að samþykkja að taka verkefnið að sér.

Martin stýrði síðast Southampton og kom hann liðinu upp í ensku úrvalsdeildina, en þar gekk afar illa og var hann látinn taka pokann sinn fyrir nokkrum mánuðum.

Martin er með afar skemmtilega hugmyndafræði og spilar aðlaðandi fótbolta.
Athugasemdir
banner