
Í kvöld fram vígsluleikurinn á nýja hybrid-grasinu á Laugardalsvelli þegar Ísland mætir Frakklandi í Þjóðadeild kvenna.
Flautað verður til leiks klukkan 18:00 á Laugardalsvlelinum en þetta er mjög svo mikilvægur leikur í Þjóðadeildinni.
Flautað verður til leiks klukkan 18:00 á Laugardalsvlelinum en þetta er mjög svo mikilvægur leikur í Þjóðadeildinni.
Það er ekkert sérstaklega gott veður í kortunum fyrir leik kvöldsins þar sem gular og appelsínur gular viðvaranir eru í gildi um allt land þessa stundina.
Gula viðvörunin er í gildi á höfuðborgarsvæðinu til klukkan 17, klukkutíma áður en leikurinn hefst. „Norðan 13-20 m/s með snörpum vindhviðum. Fólk er hvatt að tryggja lausamuni sem geta fokið," segir í tilkynningu veðurstofunnar um veður á höfuðborgarsvæðinu.
Vindurinn mun aðeins fara niður með kvöldinu en búist er við um 8 metrum á sekúndu og 5 gráðum á meðan leikurinn fer fram.
Athugasemdir