Simone Inzaghi hefur samþykkt að taka við Al-Hilal í Sádi-Arabíu. Fabrizio Romano segir frá þessu og skellir 'here we go' með því.
Inzaghi hefur síðastliðin ár gert stórkostlega hluti með Inter á Ítalíu; undir hans stjórn hefur liðið einu sinni orðið Ítalíumeistari, tvisvar bikarmeistari og tvisvar komist í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Inter komst í úrslitaleikinn í Meistaradeildinni á nýliðnu tímabili en liðið tapaði þar stórt gegn PSG.
Núna er hann að elta peningana til Sádi-Arabíu og mun hann taka við Al-Hilal.
Al-Hilal reyndi að kaupa Bruno Fernandes á dögunum en hann hafnaði risastóru tilboði. Félagið er með stór nöfn á borði hjá sér; Victor Osimhen og Theo Hernandez þar á meðal.
Athugasemdir