Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 18:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Laugardalsvelli
Furðulostnir Frakkar þegar þjóðsöngurinn var spilaður á Íslandi
Icelandair
EM KVK 2025
Svipurinn á Frökkum segir svolítið söguna.
Svipurinn á Frökkum segir svolítið söguna.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það var fremur skrautlegt þegar þjóðsöngur Frakklands var spilaður á Laugardalsvelli fyrir leikinn gegn Íslandi sem fer núna fram í Þjóðadeildinni.

Þegar La Marseillaise, þjóðsöngur Frakka, var spilaður fyrir leikinn þá var einhver önnur tónlist spiluð á sama tíma og úr varð frekar vandræðalegt augnablik á vellinum.

Lestu um leikinn: Ísland 0 -  2 Frakkland

Frakkar tóku vel eftir þessu og um þetta er talað á samfélagsmiðlum þessa stundina.

Strákarnir í HúbbaBúbba voru að spila á Laugardalsvelli rétt áður en leikurinn hófst og spurning hvort þeirra tónlist hafi eitthvað flækst í hljóðkerfinu.

Hér fyrir neðan má sjá myndband sem frönsk fjölmiðlakona deildi af þjóðsöngnum. Rifjar hún það upp þegar tenórinn Jóhann Friðgeir Valdimarsson söng franska þjóðsönginn fyrir leik Íslands og Frakklands árið 1998. Féll sá flutningur ekki vel í kramið hjá Frökkum.

Svo þar fyrir neðan er brot af umræðunni á samfélagsmiðlum.






Athugasemdir
banner
banner