
Bryan Mbeumo, kantmaður Brentford, er leikmaður sem Manchester United er að reyna að kaupa. Enskir miðlar hafa þá fjallað um að Mbeumo sé sjálfur mjög spenntur fyrir því að fara til United.
Hann átti frábært tímabil með Brentford þar sem hann skoraði 20 mörk í 38 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Hann átti frábært tímabil með Brentford þar sem hann skoraði 20 mörk í 38 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson er liðsfélagi Mbeumo hjá Brentford en hann var spurður út í leikmanninn í viðtali við Fótbolta.net í dag.
„Hann er geggjaður leikmaður og sýndi það í vetur hversu góður hann er. Hann hefur sýnt það síðustu ár að hann er einn besti kantmaður ensku úrvalsdeildarinnar," sagði Hákon.
„Hann er með geggjaðan vinstri fót og hefur allt sem hægri kantmaður þarf að hafa."
Er erfitt að eiga við hann á æfingum?
„Nei, nei. Maður lærir á hann," sagði Hákon og brosti.
Athugasemdir