Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Carragher vill nýjan framherja til Liverpool
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fótboltasérfræðingurinn og Liverpool aðdáandinn Jamie Carragher er ánægður með byrjun Liverpool á félagaskiptamarkaðinum í sumar.

Liverpool er að kaupa Jeremie Frimpong og Florian Wirtz frá Bayer Leverkusen auk þess að vera sterklega orðað við Milos Kerkez, vinstri bakvörð Bournemouth og ungverska landsliðsins.

Carragher vill þó að félagið setji nýjan framherja í forgang þar sem hann telur Darwin Núnez og Diogo Jota ekki vera nægilega góða kosti.

„Ég sagði það í gegnum allt tímabilið að Liverpool vantar fimm eða sex leikmenn til að fullkomna liðið. Ég held að nýr vinstri bakvörður sé að fara beint inn í byrjunarliðið á meðan Frimpong mun berjast við Conor Bradley um hægri bakvarðarstöðuna. Wirtz mun líka fara beint inn í byrjunarliðið en okkur vantar sterkan framherja," sagði Carragher í The Overlap hlaðvarpinu.

„Eftir að Liverpool klárar að kaupa þessa þrjá leikmenn þá er röðin komin að framherja. Félaginu hefur vantað vinstri bakvörð og sóknartengilið allt tímabilið en ég verð hissa ef félagið kaupir ekki líka einn framherja.

„Þetta snýst líka um hvaða leikmenn Liverpool getur selt í sumar. Ef félaginu tekst að selja nóg af leikmönnum gæti það líka keypt einn miðvörð og einn miðjumann aukalega til að breikka hópinn."

Athugasemdir
banner