Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
Jói Kalli ósáttur: Engin regla um hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hagnaði er beitt
Þorri Stefán: Ég hef verið kallaður Joe Gomez Fram-liðsins
Rúnar Kristins: Við höfum fengið fyrirspurnir um Magnús
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
   þri 03. júní 2025 21:29
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Cecilía: Mér fannst við vera með Frakkana í vasanum
Icelandair
EM KVK 2025
Cecilía Rán, markvörður Íslands.
Cecilía Rán, markvörður Íslands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Vonbrigði að hafa ekki náð allavega stigi úr þessum leik. Mér fannst við vera alveg með Frakkana í vasanum. Vorum að skapa okkur færi í fyrri hálfleik og vorum að verjast ótrúlega vel. Svekkjandi að fá þetta fyrsta mark á sig og svo kemur bara seinna markið í kjölfarið," sagði Cecilía Rán Rúnarsdóttir, markvörður Íslands, eftir 0-2 tap gegn Frakklandi í Þjóðadeildinni.


Lestu um leikinn: Ísland 0 -  2 Frakkland

„Mér fannst að við hefðum getað byrjað fyrr að nýta það að vera með vindi, við fórum svona að fatta það þegar það voru 20 mínútur eftir að við værum með vindinn og gætum pressað betur á þær og farið að skjóta á markið. Það vantaði svolítið í byrjun leiks."

Cecilía átti góðan leik og var annan leikinn í röð valin maður leiksins. Sérstaklega átti hún frábæra vörslu í fyrri hálfleik í stöðunni 0-0. Cecilía segir að henni hafi liðið ótrúlega vel í leiknum.

„Mér líður bara vel að spila fótbolta og er farin að spila í félagsliði og svona, það bara gefur mér sjálfstraust inn í landsliðið."

Nánar er rætt við Cecilíu í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner
banner