Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Modric fer til Milan
Mynd: EPA
Sky á Ítalíu heldur því fram að króatíski miðjumaðurinn Luka Modric sé búinn að samþykkja samningstilboð frá AC Milan.

Modric, sem á fertugsafmæli í september, kemur til Milan á frjálsri sölu eftir að hafa verið hjá Real Madrid síðustu þrettán ár.

Þessi goðsagnakenndi miðjumaður á að hjálpa til við að fylla í skarðið sem myndast þegar Milan selur Tijjani Reijnders til Manchester City.

Ekki er greint frá samningslengd en líklegt er að Modric geri eins árs samning við félagið með möguleika á auka ári.

Sky segir að félagaskiptin muni ganga í gegn á næstu dögum.
Athugasemdir
banner