Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 14:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Þetta er ekki bara opnunarleikur Laugardalsvallar"
Icelandair
EM KVK 2025
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði.
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frá Laugardalsvelli.
Frá Laugardalsvelli.
Mynd: Aðsend
Íslenska kvennalandsliðið spilar í kvöld við Frakkland í Þjóðadeild kvenna. Þetta er síðasti leikurinn hjá stelpunum í þessari útgáfu Þjóðadeildarinnar og er hann mikilvægur hvað það varðar.

En hann er líka mikilvægur upp á það að gera að þetta er síðasti heimaleikurinn hjá okkar stelpum fyrir Evrópumótið.

Núna eru þær komnar á Laugardalsvöll eftir að hafa spilað tvo síðustu leiki á Þróttaravelli. Þetta er vígsluleikurinn á nýja grasinu á Laugardalsvelli og verður spennandi að sjá hvernig það kemur út.

„Ég get ekki beðið eftir því að komast aftur á Laugardalsvöll," sagði Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Íslands, við Fótbolta.net á dögunum.

„Það verður ótrúlega gaman fyrir okkur að vígja völlinn. Ég vona auðvitað bara að Íslendingar fjölmenni og gerum þetta að risa viðburði. Þetta er ekki bara opnunarleikur Laugardalsvallar, þetta er líka kveðjuleikur okkar fyrir EM. Ég vona að þjóðin vilji vera með okkur í þessu."

Veðrið er kannski ekki það besta, en fjölmennum samt á völlinn og kveðjum stelpurnar áður en þær halda á Evrópumótið í næsta mánuði.
Athugasemdir
banner