Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 20:27
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeild kvenna: Svíþjóð rústaði Dönum - Spánn lagði England
Kvenaboltinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Lokaumferðin í A-deild Þjóðadeildar kvenna fór fram í kvöld og voru nokkrir stórleikir á dagskrá, þar sem Svíþjóð fékk Danmörku í heimsókn í úrslitaleik um toppsæti.

Svíar gerðu sér lítið fyrir og rúlluðu yfir nágranna sína með sex mörkum gegn einu. Stina Blackstenius skoraði þrennu og gaf eina stoðsendingu í stórsigrinum.

Svíar enda því í efsta sæti riðilsins með 12 stig, tveimur stigum fyrir ofan Ítalíu sem vann örugglega á útivelli gegn Wales. Hin 35 ára gamla Cristiana Girelli skoraði tvennu og gaf eina stoðsendingu í 1-4 sigri Ítala.

England tapaði þá toppslagnum gegn Spáni og endar í öðru sæti á meðan Belgía náði þriðja sætinu með frábærum sigri í Portúgal. Belgar heimsóttu Portúgali í úrslitaleik um þriðja sætið og sigruðu örugglega með þriggja marka mun til að bjarga sér frá falli.

Að lokum skoraði Þýskaland sex mörk á útivelli gegn Austurríki á meðan Holland gerði þýðingarlaust jafntefli við Skotland. Þýskaland var þegar búið að tryggja sér toppsætið og Holland annað sætið fyrir leiki kvöldsins.

Þess má geta að Noregur sigraði gegn Sviss til að tryggja sér 2. sætið í íslenska riðlinum. Ísland endar í 3. sæti eftir annað tap gegn Frakklandi.

Svíþjóð 6 - 1 Danmörk

Wales 1 - 4 Ítalía

Spánn 2 - 1 England

Portúgal 0 - 3 Belgía

Sviss 0 - 1 Noregur

Ísland 0 - 2 Frakkland

Austurríki 0 - 6 Þýskaland

Holland 1 - 1 Skotland

Athugasemdir
banner