Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sex mörkum frá metinu - „Hungrið verður bara meira"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fagnað 125 mörkum í efstu deild.
Fagnað 125 mörkum í efstu deild.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Patrick Pedersen er eftir gærdaginn sex mörkum frá því að jafna markamet Tryggva Guðmundssonar í efstu deild. Danski framherjinn skoraði fyrra mark Vals í sigri liðsins gegn Fram í gær.

Hann er kominn með 125 mörk í efstu deild, Tryggvi skoraði á sínum ferli 131 mark. Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, var annan leikinn í röð spurður út í Patrick í viðtali eftir leik.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  1 Fram

„Það er heiður að þjálfa þennan strák, frábær fótboltamaður og frábær karakter. Hann er búinn að vera í mörg ár hjá Val, hungrið hefur aldrei minnkað, verður bara meira með hverju árinu," sagði Túfa.

„Hann vill alltaf gera vel fyrir klúbbinn, liðsfélagana og þjálfarana. Þú vilt hafa svona gæja í liðinu hjá þér."

Valur er núna tveimur stigum frá toppsæti deildarinnar og spila í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins eftir landsleikjahléið.
Túfa aldrei hugsað um töfluna - „Mikilvægast að halda stöðugleika"
Athugasemdir
banner
banner