Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   þri 03. júní 2025 21:23
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Guðrún Arnar: Kannski sanngjarn sigur hjá þeim
Icelandair
EM KVK 2025
Guðrún í leiknum í kvöld.
Guðrún í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland tapaði í kvöld 0-2 fyrir Frakklandi í ÞJóðadeildinni. Guðrún Arnardóttir varnarmaður Íslands var að vonum svekkt eftir leik.

„Svekkt með þessi tvö mörk sem við fengum á okkur. Mér fannst við kannski heilt yfir verjast ágætlega, þær voru ekki að opna okkur mikið og við hefðum kannski þurft að geta haldið betur í boltann. Í heildina kannski sanngjarn sigur hjá þeim en margt ágætt í okkar leik," sagði Guðrún.


Lestu um leikinn: Ísland 0 -  2 Frakkland

Ísland spilaði með vindinn í bakið í fyrri hálfleik og fékk nokkur góð tækifæri til að skora, en það tókst ekki. Seinni hálfleikurinn var svo erfiður á móti vindinum.

„Maður vill náttúrulega nýta vindinn þegar maður er með hann í bakið, það er alltaf erfiðara að komast fram völlinn þegar maður er í mótvindinum. Þannig eins og þú segir hefði verið "ógeðslega næs" að pota inn einu í fyrri hálfleik en það er bara svoleiðis," sagði Guðrún.

Ísland spilar við Serbíu áður en þær halda til Sviss á EM í byrjun júlí. ,,Ég er mjög spennt. Núna fer maður aðeins heim í félagsliðið að spila smá og svo komum við inn í það verkefni og komum saman. Ég held við getum tekið mikið úr þessum leikjum hjá okkur núna í þessum glugga. Varnarlega í dag vorum við flottar, en við kannski sofnum á verðinum þarna tvisvar og við þurfum að fínpússa það, vera skarpari í þeim hlutum."

Nánar er rætt við Guðrúnu í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner
banner