Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 18:04
Elvar Geir Magnússon
Glasgow
Ísland á fimm stjörnu hóteli sem er vinsælt meðal fræga og ríka fólksins
Fótbolti.net heimsótti hótelið í dag.
Fótbolti.net heimsótti hótelið í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Íslenska landsliðið dvelur við toppaðstæður á fimm stjörnu hóteli í sveitasælunni rétt fyrir utan Glasgow. Það er að búa sig undir að mæta Skotlandi í vináttulandsleik á föstudagskvöld.

„Hótelið er geggjað og það er flottur golfvöllur hérna," sagði landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson í viðtali við Fótbolta.net en einhverjir landsliðsmenn skelltu sér einmitt í golf í dag.

Mar Hall eins og hótelið heitir er nýbúið að ganga í gegnum miklar endurbætur eftir að fjárfestar frá Dúbaí keyptu það. Það er staðsett í skóglendi og áin Clyde og falleg náttúra allt í kring.

Hótelið er vinsælt hjá fræga og ríka fólkinu en Beyonce, George Clooney, Kylie Minogue, Whitney Houston, Harry Styles, Brad Pitt, Katy Perry, Liam Gallagher og Ed Sheeran eru meðal þeirra sem hafa dvalið á því.

Skoska landsliðið hefur notað hótelið og einnig fleiri fótboltalið, þar á meðal Real Madrid, AC Milan og Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner