
„Tilfinningin er ekkert spes. Mér leið allan tímann eins og við værum að fara að vinna leikinn," sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eftir 0-2 tap gegn Frakklandi í Þjóðadeildinni í kvöld.
„Það var gríðarlega sárt að fá svona tvö ódýr mörk á okkur. Það er ólíkt okkur að missa fókus og þær refsa, eru hrikalega góðar í því."
„Það var gríðarlega sárt að fá svona tvö ódýr mörk á okkur. Það er ólíkt okkur að missa fókus og þær refsa, eru hrikalega góðar í því."
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 2 Frakkland
Karólína var nýfarin af velli þegar Frakkar tóku forystuna.
„Ég var alveg brjáluð. Ekki gaman. Ég sé ekki einu sinni hvað gerist og svo er boltinn inni. Það er ekki gaman."
Fyrra markið var rangstöðumark. „Ég vissi það ekki en það gerir þetta enn meira pirrandi," sagði Karólína.
Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir