Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 19:59
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeild kvenna: Frakkland vann á Laugardalsvelli
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísland 0 - 2 Frakkland
0-1 Sandy Baltimore ('74)
0-2 Grace Geyoro ('85)

Lestu um leikinn: Ísland 0 -  2 Frakkland

Íslenska kvennalandsliðið tók á móti Frakklandi í lokaumferð í deildakeppni Þjóðadeildarinnar í dag og þurftu Stelpurnar okkar helst sigur til að eiga möguleika á að hirða annað sætið af Noregi. Noregur spilaði við botnlið Sviss á sama tíma.

Staðan var markalaus eftir flottan fyrri hálfleik á Laugardalsvelli þar sem bæði lið fengu góð færi. Cecilía Rán Rúnarsdóttir gerði vel að verja frá Frökkum í tvígang en Hlín Eiríksdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir fengu tækifæri til að skora fyrir Ísland.

Hlín átti ekki nægilega gott skot áður en Glódís klúðraði af stuttu færi eftir góða aukaspyrnu frá Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur.

Bæði lið fengu flott færi eftir þetta en staðan var þó enn markalaus þegar flautað var til leikhlés eftir opinn og skemmtilegan fyrri hálfleik.

Þær frönsku mættu grimmar inn í seinni hálfleikinn og voru sterkari aðilinn nánast allan tímann. Stelpurnar okkar stóðu sóknarhríðina af sér og virtust vera að komast aftur inn í leikinn þegar þær fengu mark í andlitið.

Frakkar áttu hraða sókn þar sem Melvine Malard komst upp kantinn og gaf fastan bolta fyrir markið, beint á Baltimore sem var í dauðafæri. Cecilíu tókst þó að verja fyrsta skotið hennar en boltinn rataði beint aftur á Baltimore sem skoraði í autt markið.

Ekki er notast við VAR í deildakeppni Þjóðadeildarinnar en þetta mark hefði ekki staðið með notkun tækninnar. Þær frönsku skoruðu rangstöðumark.

Stelpurnar okkar reyndu að svara fyrir sig en fengu annað mark á sig í staðinn eftir langan bolta upp völlinn. Clara Mateo gerði vel að láta boltann fara framhjá sér til Grace Geyoro sem var komin ein í gegn og lagði boltann framhjá Cecilíu til að innsigla sigurinn.

Stelpurnar náðu ekki að minnka muninn á lokakaflanum svo lokatölur urðu 0-2. Noregur vann 0-1 á útivelli gegn Sviss á sama tíma.

Ísland endar í 3. sæti og mun eiga umspilsleiki við lið úr B-deildinni. Sigurvegari umspilsins leikur í A-deild á næstu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner