Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Chelsea setur sig í samband við AC Milan
Mike Maignan.
Mike Maignan.
Mynd: EPA
Chelsea hefur sett sig í samband AC Milan vegna markvarðarins Mike Maignan.

Frá þessu segir ítalski íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano.

Chelsea hefur átt í vandræðum með markvarðastöðu sína í dágóðan tíma núna en Robert Sanchez og Filip Jorgensen léku í marki liðsins á síðustu leiktíð. Hvorugur þeirra heillaði mikið.

Maignan, sem er 29 ára, verður samningslaus næsta sumar og því gæti AC Milan neyðst til að selja hann núna.

Það er spurning hvað gerist en hjá Milan hefur Maignan verið virkilega öflugur.
Athugasemdir
banner