„Frammistaða Tobias Thomsen fannst mér einstök á íslenskan mælikvarða," segir Atli Viðar Björnsson í Innkastinu.
Thomsen átti stórleik þegar Breiðablik vann 3-1 sigur gegn Víkingum í Bestu deildinni um liðna helgi. Hann skoraði tvennu í leiknum og lagði upp hitt markið.
Thomsen átti stórleik þegar Breiðablik vann 3-1 sigur gegn Víkingum í Bestu deildinni um liðna helgi. Hann skoraði tvennu í leiknum og lagði upp hitt markið.
„Vinnusemin var til mikillar fyrirmyndar, hann var frábær með bakið í markið sem uppspilspunktur og svo er hann bara ótrúlega hættulegur í teignum. Það finnst mér hann hafa bætt frá því hann var hér síðast að hann er hættulegri í teignum," segir Atli Viðar.
„Hjartanlega sammála því," segir Valur Gunnarsson. „Hann er að henda sér í tæklingar í stöðunni 3-0 í lokin. Þú færð ekkert svona frá lúxusleikmönnum. Hann er með allan pakkann."
Tobias lék áður með Val og KR en sneri aftur til Íslands í vetur eftir að hafa spilað í Danmörku og Portúgal. Í sumar hefur hann skorað sjö mörk í tíu deildarleikjum.
Athugasemdir