Liverpool hefur sett sig í samband við fólk sem er nátengt Alexander Isak - Úlfarnir horfa til Jota
   fös 04. febrúar 2022 13:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hópurinn sem fer á SheBelieves Cup: Ásta Eir í hópnum
Icelandair
Ásta Eir er í hópnum!
Ásta Eir er í hópnum!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Amanda Andradóttir er líka valin.
Amanda Andradóttir er líka valin.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson tilkynnti í dag 23 manna leikmannahóp sem mun taka þátt í SheBelieves Cup - æfingamóti í Bandaríkjunum dagana 17.- 23. febrúar.

Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í mótinu. Ísland mætir Nýja-Sjálandi, Tékklandi og Bandaríkjunum. Mótið fer fram í Dallas og Los Angeles.

Þrír markverðir eru í hópnum, átta varnarmenn, sjö miðjumenn og fimm sóknarmenn.

Það vekur athygli að fyrirliði Breiðabliks, Ásta Eir Árnadóttir, er í hópnum í fyrsta sinn síðan haustið 2019. Guðný Árnadóttir er ekki í hópnum vegna meiðsla og þá eru þær Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir og Elín Metta Jensen ekki í hópnum.

Hópurinn:
Markverðir:
Sandra Sigurðardóttir - Valur - 39 leikir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Bayern Munich - 5 leikir
Telma Ívarsdóttir - Breiðablik

Varnarmenn:
Elísa Viðarsdóttir - Valur - 43 leikir
Ásta Eir Árnadóttir - Breiðablik - 8 leikir
Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern Munich - 97 leikir, 6 mörk
Ingibjörg Sigurðardóttir - Valerenga - 41 leikur
Guðrún Arnardóttir - Rosengard - 13 leikir, 1 mark
Sif Atladóttir - Selfoss - 84 leikir
Hallbera Guðný Gísladóttir - Kalmar - 123 leikir, 3 mörk
Natasha Moraa Anasi - Breiðablik - 4 leikir

Miðjumenn:
Dagný Brynjarsdóttir - West Ham - 97 leikir, 32 mörk
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir - Orlando Pride - 84 leikir, 12 mörk
Alexandra Jóhannsdóttir - Eintracht Frankfurt - 19 leikir, 3 mörk
Karitas Tómasdóttir - Breiðablik - 7 leikir
Selma Sól Magnúsdóttir - Rosenborg - 16 leikir, 1 mark
Ída Marín Hermannsdóttir - Valur - 1 leikur
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Bayern Munich - 13 leikir, 5 mörk

Sóknarmenn:
Berglind Björg Þorvaldsdóttir - Brann - 57 leikir, 9 mörk
Svava Rós Guðmundsdóttir - Brann - 30 leikir, 2 mörk
Agla María Albertsdóttir - Häcken - 42 leikir, 3 mörk
Sveindís Jane Jónsdóttir - Wolfsburg - 13 leikir, 6 mörk
Amanda Jacobsen Andradóttir - Kristianstad - 3 leikir



Leikir Íslands:

Fimmtudagurinn 17. febrúar
Ísland - Nýja Sjáland á Dignity Health Sports Park kl. 01:00 að íslenskum tíma.

Sunnudagurinn 20. febrúar
Ísland - Tékkland á Dignity Health Sports Park kl. 23:00 að íslenskum tíma.

Miðvikudagurinn 23. febrúar
Ísland - Bandaríkin á Toyota Stadium kl. 02:00 að íslenskum tíma.
Athugasemdir
banner
banner