Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Albert: Þetta var ekki auðvelt
Jón Dagur: Alvaran hefst í haust
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
   mið 10. júní 2026 07:29
Atli Arason
Auburn, Alabama
Albert: Þetta var ekki auðvelt
Albert Guðmundsson
Albert Guðmundsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Albert Guðmundsson, leikmaður Íslands, var ekki sáttur við tap liðsins gegn Argentínu í Alabama í erfiðum leik.


Lestu um leikinn: Argentína 3 -  0 Ísland

Þetta var alvöru áskorun. Við vorum auðvitað að spila á móti ríkjandi heimsmeisturum. Þetta var ekki auðvelt í dag. Við erum ekki sáttir með 3-0 en auðvitað er það heiður að fá að spila á móti þessu liði. Við hefðum getað gert betur í ákveðnum stöðum en svona er þetta bara. Við tökum þetta og lærum af þessu. Þetta er gott veganesti fyrir þjóðardeildina í vetur,“ sagði Albert í viðtali við Fotbolti.net eftir leik.

Við vorum komnir í 1-0 og svo lendum við 2-0 undir, þá erum við byrjaðir að elta og þurfum að stíga aðeins ofar og þá slitnar á milli línanna hjá okkur. Eitt mark í viðbót, við ætlum ekki að rýna of mikið í það. Við fengum ágætis stöður inn á milli og við vildum auðvitað meira af því en við bara lifum og lærum. Áfram gakk.

Lionel Messi fékk flestar fyrirsagnirnar eftir innkomu hans í leiknum á 70. mínútu.

Þetta er auðvitað geitin í leiknum. Þannig að jú, besti leikmaður í heimi kemur inn á og fer beint í að senda stungusendingu og þeir fá víti sem hann skorar sjálfur úr. Það er svolítið vendipunkturinn í leiknum, annað markið. Hann gerði herslumuninn um leið og hann kom inn á,“ sagði Albert Guðmundsson, leikmaður Íslands.

Albert svaraði einnig spurningum um orðrómum um framtíðina sína og treyjuskipti Jón Dags við Messi. Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner