Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
   mán 06. apríl 2026 15:51
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Grindavík áfram eftir svakalegan lokakafla
Úr leik Grindavíkur og Keflavíkur
Úr leik Grindavíkur og Keflavíkur
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Hjörvar Daði varði eitt víti og þá skoraði Damir Muminovic úr vítaspyrnunni sem sendi liðið áfram
Hjörvar Daði varði eitt víti og þá skoraði Damir Muminovic úr vítaspyrnunni sem sendi liðið áfram
Mynd: Grindavík
Grindavík 1 - 1 Keflavík (4-2 eftir vítakeppni)
0-1 Eiður Orri Ragnarsson ('119 )
1-1 Rafael Victor ('120 )
Lestu um leikinn

Grindavík er komið með farseðilinn í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir svakalega dramatík í Hafnarfirði í dag. Tvö mörk voru skoruð undir lok framlengingar og voru það síðan Grindvíkingar sem höfðu betur í vítakeppni.

Færin voru á báða bóga. Grindavík var með ágætis tök á leiknum í fyrri hálfleiknum og skapaði sér nokkur góð færi en Keflvíkingar fengu líka ágætis færi.

Grindvíkingar björguðu á línu snemma í þeim síðari er Dagur Ingi Valsson átti skalla sem var hreinsaður frá og þá var Dagur aftur nálægt því að skora síðar í leiknum en Hjörvar Daði Arnarsson varði vel.

Leikurinn var framlengdur og voru augljós þreytumerki á liðunum, en undir lok síðari hlutans komust Keflvíkingar í forystu er Eiður Orri Ragnarsson átti frábæran skalla aftur fyrir sig eftir hornspyrnu.

Keflvíkingar héldu flestir að þarna væri þetta komið en í uppbótartíma jafnaði Rafael Victor. Damir Muminovic átti frábæran bolta á Inga Þór Sigurðsson sem skallaði boltann á Rafael Victor sem jafnaði leikinn.

Vítaspyrnukeppni var það og þar höfðu Grindvíkingar betur en Ásgeir Páll Magnússon skaut einu víti yfir og þá varði Hjörvar Daði tvö víti frá Marin Mudrazija, sem fékk að endurtaka vítið sitt eftir að Hjörvar steig af línunni, en hann varði seinna vítið líka sem var alveg eins og fyrra, neðst í hægra hornið.

Svakaleg dramatík í lokin en Grindvíkingar gáfust ekki upp og eru nú komnir áfram í 16-liða úrslitin. Dregið verður á fimmtudag.

Vítakeppnin:
0-0 Ásgeir Orri Magnússon ver frá Rafael Victor
0-1 Eiður Orri Ragnarsson
1-1 Eysteinn Rúnarsson
1-2 Þorlákur Breki Baxter
2-2 Rúnar Ingi Eysteinsson
2-2 Ásgeir Páll Magnússon skýtur yfir
3-2 Ingi Þór Sigurðsson
3-2 Hjörvar Daði ver frá Marin Mudrazija
4-2 Damir Muminovic


Slapp
banner
banner