Stjórastaða Tottenham Hotspur er heitasta umræðuefnið í Powerade-slúðurpakka dagsins, en fyrrum leikmenn liðsins eru orðaðir við stöðuna.
Tottenham hefur átt viðræður við Roberto de Zerbi, fyrrum þjálfara Marseille, varðandi það að taka við félaginu ef því tekst að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni. (Telegraph)
Glenn Hoddle, fyrrum leikmaður og stjóri Tottenham, hefur boðist til að taka við sem bráðabirgðastjóri félagsins ef Igor Tudor verður látinn fara. (Mail)
Robbie Keane, annar fyrrum leikmaður Tottenham, er einnig talinn ofarlega á lista hjá Tottenham. (Teamtalk)
Napoli vonast til þess að tryggja framtíð Scott McTominay (29) hjá félaginu, en hann hefur verið orðaður við endurkomu í ensku úrvalsdeildina. (Goal)
William Osula (22), framherji Newcastle United, segist ekki vita hvað framtíðin ber í skauti sér, en hann ætlar að einbeita sér að því að klára tímabilið með liðinu. Hann hefur áður verið orðaður við Stuttgart í Þýskalandi. (ChronicleLive)
Antoine Griezmann (34) hefur ákveðið að klára tímabilið með Atlético Madríd. Orlando City í MLS-deildinni hefur sýnt Griezmann mikinn áhuga síðustu vikur. (L'Equipe)
Manchester City mun bjóða enska miðjumanninum Phil Foden (25) nýjan samning, en núgildandi samningur leikmannsins rennur út eftir næsta tímabil. Viðræðurnar verða ekki auðveldar í ljósi óstöðugs forms leikmannsins. (Athletic)
Mason Mount (27), leikmaður Manchester United og enska landsliðsins, ætlar ekki að fara fram á sölu frá félaginu í sumar. (Football Insider)
Man Utd hefur verið upplýst af tyrkneska félaginu Trabzonspor um að það vilji ekki borga 40-43 milljóna punda klásúluverð kamerúnska markvarðarins Andre Onana. (MEN)
Kevin Schade (24), vængmaður Brentford, er á óskalista Tottenham, Bayern München og Inter. (Teamtalk)
Athugasemdir



