Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   fim 07. maí 2026 09:30
Kári Snorrason
Niklas Sule kallar þetta gott aðeins þrítugur
Niklas Sule.
Niklas Sule.
Mynd: EPA
Þýski varnarmaðurinn Niklas Sule, leikmaður Dortmund, mun leggja skóna á hilluna í sumar eftir að hafa orðið fyrir hnémeiðslum.

Sule, sem er aðeins þrítugur, meiddist á hné í leik með Dortmund gegn Hoffenheim í síðasta mánuði og var óttast um að hann hafi slitið krossband í þriðja sinn á ferlinum.

Hann slapp þó við þau meiðsli en segir ákvörðunina um að hætta þá þegar hafa legið fyrir, þar sem hann vildi ekki taka áhættuna á öðrum alvarlegum meiðslum.

Hann er þekktastur fyrir tímann sinn hjá Bayern Munchen en þar vann hann fimm þýska meistaratitla, Meistaradeildina 2020, ásamt því lék hann 49 landsleiki fyrir Þýskaland.
Slapp
banner
banner
banner