„Mér fannst við vera betra liðið í fyrri hálfleiknum og fáum á okkur skítamörk. Við vorum óheppin að vera 2-1 undir í hálfleik, svo pakka þær í seinni,“ sagði Þórhallur Víkingsson, þjálfari HK/Víkings um 1-3 tap liðs síns gegn ÍBV í kvöld í Kópóvogi.
Lestu um leikinn: HK/Víkingur 1 - 3 ÍBV
„Við lögðum áherslu á það að við ætluðum að koma fleiri skotum á og við vinnum í því í framtíðinni,“ sagði hann aðspurður um sóknarleik liðsins.
Spurður hvort rauða spjaldið sem Eygló Þorsteinsdóttir fékk á sig hefði gert út um leikinn sagði hann: „Já já. Við höfðum alveg trú á þessu í hálfleik, fundumst við vera búin að vera betra liðið á vellinum. Við ætluðum ekkert á ná í jafntefli við ætluðum að sigra leikinn. En það gekk ekki í þetta skiptið.“
Athugasemdir





















