Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   sun 08. mars 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Howe: City voru ótrúlega góðir í dag
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Eddie Howe þjálfari Newcastle svaraði spurningum eftir tap á heimavelli gegn varaliði Manchester City í 16-liða úrslitum enska bikarsins í gærkvöldi.

Heimamenn byrjuðu af krafti, fengu góð færi og náðu forystunni áður en gestirnir tóku völdin á vellinum.

„Þetta var góð byrjun hjá okkur, við vorum virkilega öflugir fyrsta hálftímann en svo voru tveir hlutir sem urðu til þess að við töpuðum leiknum. Í fyrsta lagi vantaði meira bensín á tankinn og í öðru lagi spiluðu andstæðingarnir okkar ótrúlega vel. Við verðum að sætta okkur við það," sagði Howe.

„Við náðum ekki að halda í boltann, þeir voru ótrúlega góðir í dag. Ég verð að þakka stuðningsmönnum sérstaklega fyrir, þeir stóðu við bakið á okkur allan tímann þrátt fyrir lélegan seinni hálfleik. Við erum stoltir af stuðningnum - við munum þurfa á honum að halda í Meistaradeildinni!"

Newcastle hefur ekki átt sérlega gott tímabil í ensku úrvalsdeildinni og er um miðja deild með 39 stig eftir 29 umferðir, en liðið á leiki framundan við Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Núna fer öll einbeitingin á þriðjudaginn. Það eru tveir risastórir leikir framundan."

Newcastle spilar við Chelsea í úrvalsdeildinni á milli leikjanna gegn Barcelona.

Þetta var fjórði leikurinn í röð sem Newcastle tapar gegn Man City á þessu dagatalsári, eftir að hafa lagt lærlinga Pep Guardiola að velli í lok nóvember.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner