Sparkspekingurinn Gary Neville veltir fyrir sér hvort Arne Slot sé að finna fyrir meiri pressu í kjölfarið af því að Mohamed Salah tilkynnti um ákvörðun sína að yfirgefa Liverpool í sumar og hvort það hafi verið rétti tíminn að greina frá því þegar tveir mánuðir eru eftir af tímabilinu.
Salah tilkynnti á dögunum að þetta yrði hans síðasta tímabil í Liverpool-búningnum.
Hann mun yfirgefa félagið sem goðsögn, ekki bara hjá Liverpool heldur líka í ensku úrvalsdeildinni, en hann komst að samkomulagi um að rifta samningnum aðeins tæpu ári eftir að hafa framlengt við félagið.
Samband Salah og Slot hefur verið stirrt á þessari leiktíð, en Egyptinn sakaði Hollendinginn um að hafa kastað sér fyrir rútuna þegar liðið var að spila sem verst. Þetta kom rétt fyrir Afríkukeppnina, en þeir leystu ágreininginn.
Þetta tímabil er líklega það slakasta hjá Salah síðan hann kom til Liverpool árið 2017, en hann er þó ekki sá eini sem hefur átt erfitt uppdráttar í hópnum.
Tilkynningin frá Salah kom ekki mörgum á óvart. Flestir voru að búast við að hann færi í sumar, en Neville telur að þetta gæti sett enn meiri pressu sá Slot.
„Mig grunar að Liverpool og Arne Slot voru í stöðu þar sem Mo Salah hefur bara sagt 'Ég vil tilkynna þetta'. Þetta setti félagið í mjög svo erfiða stöðu því ef félagið hefði hafnað beiðni hans og viljað tilkynna þetta eftir tímabilið þá hefði Salah orðið pirraður og óánægður út leiktíðina. En var þetta rétti tíminn fyrir Liverpool?“
„Hvað gerir þetta fyrir Arne Slot? Í augnablikinu er hann maðurinn sem er undir pressu.“
„Ég skil svo sem af hverju hann er undir pressu því þeim hefur fatast flugið, en hann vann deildina fyrir ekki svo löngu síðan og maður hefði haldið að Liverpool og hvernig þú (Jamie Carragher) hefur talað um félagið, meðhöndli stjóra sína eins og guð, og þeir væru frekar að skella skuldinni á leikmenn heldur en að horfa á Slot sem sökudólg.“
„Í fyrsta sinn finnst mér eins og stuðningsmenn séu að snúa baki við stjóranum frekar en leikmönnum sem er eitthvað sem kemur mér á óvart svona ef maður horfir á þetta utan frá.“
„Hvað gerir þetta fyrir Arne Slot? Setur þetta meiri pressu á hann út tímabilið að Salah, sem hefur ekki spilað svo vel, vilji rifta samningnum og fara í sumar?“ sagði og spurði Neville.
Athugasemdir


