Ben White átti ævintýralega endurkomu með enska landsliðinu í 1-1 jafnteflinu gegn Úrúgvæ í gær en stuðningsmenn bauluðu á hann í leiknum. Jordan Henderson hefur komið honum til varnar og segist glaður að White sé mættur aftur.
White var að spila sinn fyrsta A-landsleik síðan 2022, en hann yfirgaf óvænt leikmannahópinn á HM í Katar eftir rifrildi við Steve Holland, aðstoðarþjálfara liðsins, og gaf ekki kost á sér eftir það.
Thomas Tuchel hefur verið í góðu sambandi við White síðan hann tók við landsliðinu og tókst loksins að sannfæra varnarmanninn um að snúa aftur fyrir verkefnið í mars.
White kom inn af bekknum á 69. mínútu og skoraði af stuttu færi eftir hornspyrnu. Það mátti heyra stuðningsmenn baula á White, sem hafa verið ósáttir með Arsenal-manninn fyrir að neita spila með Englandi í öll þessi ár.
Í uppbótartíma breyttist White úr hetju í skúrk er hann braut á Federico Vinas í teignum. Valverde steig á punktinn og jafnaði leikinn fyrir Úrúgvæ.
Henderson, liðsfélagi White í enska landsliðinu, segir alla leikmenn styðja við bakið á honum.
„Sem liðsfélagar erum við alltaf þarna til þess að sýna stuðning og margir stuðningsmanna munu styðja við bakið á leikmönnunum. Ég hef sjálfur farið í gegnum þetta, en þetta er bara hluti af því að vera landsliðsmaður Englands.“
„Sumir stuðningsmannanna hafa örugglega ekki hugmynd um af hverju þeir eru að baula. Þeir hlusta bara á það sem er sagt í fjölmiðlum sem gefur oftast ekki rétta mynd af hlutunum.“
„Það eru ekki margir sem vita af öllu því sem gerðist í Katar, en það er eitthvað sem við þurfum að eiga við innanbúðar. Ben hefur verið góður síðan hann sneri aftur og við munum styðja hann.“
„Við erum nokkrir sem höfum verið í sömu stöðu og það er mjög erfitt þegar þetta beinist að þér, en þú mátt ekki taka því of persónulega. Fjölmiðlar geta spunnið hlutina á suma vegu og segja ekki alltaf satt og rétt frá. Stuðningsmenn geta síðan gripið það og haldið að það sé sannleikurinn.“
„Það er mjög erfitt þegar þetta gerist þannig það er mikilvægt fyrir okkur að sjá til þess að hann sé í lagi og ég held að að hann sé bara í fínu lagi. Ég var hæst ánægður með að hann hafi komið inn á og skorað, sem er það lang mikilvægasta í þessu,“ sagði Henderson
Athugasemdir


