Heimsmeistarar Argentínu unnu nauman 2-1 sigur á Máritaníu, sem er í 115. sæti á heimslista FIFA, í Buenos Aires í Argentínu í nótt.
Argentínumenn höfðu ekki tapað í tvö og hálft ár í Buenos Aires og voru ekki að fara missa dampinn þó liðið þurfti að hafa sig allt í að klára gestina.
Enzo Fernandez kom Argentínu yfir á 17. mínútu er hann mætti fyrirgjöf Nahuel Molina og bætti Nico Paz við öðru rúmum stundarfjórðungi síðar með glæsilegu aukaspyrnumarki.
Lionel Scaloni gerði þrjár breytingar á liði sínu í hálfleik og var Lionel Messi meðal þeirra sem komu inn af bekknum.
Argentína skapaði sér ekkert af viti í þeim síðari en gestirnir áttu nokkur færi og þegar lítið var eftir minnkaði Jordan Lefort muninn.
Heldur seint hjá Máritaníu sem gaf heimsmeisturunum alvöru leik, en Argentína mætir mæst Sambíu á miðvikudag, sem verður síðasti leikur þeirra í þessum landsleikjaglugga.
Nico Paz has magic in his left foot pic.twitter.com/LDyNNchQc8
— WolfRMFC (@WolfRMFC) March 28, 2026
Athugasemdir



