Carlo Ancelotti þjálfari brasilíska landsliðsins svaraði spurningum eftir tap gegn Frakklandi í vináttulandsleik á fimmtudagskvöldið.
Kantmennirnir Raphinha og Vinícius Júnior voru gagnrýndir fyrir að skora ekki í leik þar sem Brasilía lék manni fleiri síðustu 40 mínúturnar.
„Mér fannst þetta flott frammistaða. Raphinha fékk góð tækifæri og Vini skapaði alltaf hættu. Sóknarmenn skora ekki í hverjum leik en þeir sinntu sínum hlutverkum vel og fengu færi," sagði Ancelotti, sem var svo spurður út í söngva stuðningsmanna Brasilíu sem vildu sjá 34 ára Neymar vera valinn í landsliðshópinn.
„Núna verðum við að tala um þá leikmenn sem eru hérna með okkur, sem spiluðu þennan leik og lögðu allt í sölurnar. Þeir voru ekki að fela sig þrátt fyrir mótlæti, þeir lögðu mikið á sig og ég er sáttur með frammistöðuna."
Raphinha fór meiddur af velli og staðfesti Ancelotti að hann er að glíma við vöðvameiðsli alveg eins og bakvörðurinn sókndjarfi Wesley Franca.
16.03.2026 19:57
Ancelotti útskýrir fjarveru Neymar: Þarf leikmenn sem eru í toppformi
Athugasemdir




