Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   sun 08. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Titilslagurinn í Mílanó
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það er mikil eftirvænting fyrir leikjum dagsins í ítalska boltanum. Það eru fimm leikir á dagskrá og lýkur fjörinu á titilslagnum í Mílanó, þar sem fjandliðin og nágrannarnir AC Milan og Inter eigast við.

Inter getur svo gott sem tryggt sér Ítalíumeistaratitilinn með sigri gegn Milan í kvöld enda eru lærlingar Cristian Chivu með tíu stiga forystu þegar ellefu umferðir eru eftir. Milan þarf á sigri að halda til að eiga einhverja von um að stela titlinum á lokametrunum.

Hvorugt lið er upptekið í evrópukeppnum og er öll einbeitingin því löggð á lokahnykk deildarkeppninnar.

Í öðrum leikjum dagsins má búast við að sjá Mikael Egil Ellertsson á sínum stað í byrjunarliði Genoa þegar meistaradeildarbaráttulið AS Roma kíkir í heimsókn.

Fiorentina og Parma eigast við í fallbaráttunni rétt eins og Lecce og Cremonese en Þórir Jóhann Helgason hefur ekki komið við sögu með liði Lecce síðan í byrjun janúar.

Leikir dagsins
11:30 Lecce - Cremonese
14:00 Bologna - Verona
14:00 Fiorentina - Parma
17:00 Genoa - Roma
19:45 Milan - Inter
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Milan 33 19 9 5 48 27 +21 66
3 Napoli 33 20 6 7 48 33 +15 66
4 Juventus 33 18 9 6 57 29 +28 63
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 33 18 4 11 46 29 +17 58
7 Atalanta 33 14 12 7 45 29 +16 54
8 Bologna 33 14 6 13 42 39 +3 48
9 Lazio 33 12 11 10 34 30 +4 47
10 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Torino 33 11 7 15 37 54 -17 40
13 Genoa 33 10 9 14 40 46 -6 39
14 Parma 33 9 12 12 24 40 -16 39
15 Fiorentina 33 8 12 13 38 45 -7 36
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Cremonese 33 6 10 17 26 47 -21 28
18 Lecce 33 7 7 19 22 46 -24 28
19 Verona 33 3 9 21 23 56 -33 18
20 Pisa 33 2 12 19 24 60 -36 18
Slapp
banner
banner
banner