Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   sun 08. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Valencia og Sevilla þurfa sigra
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sögufræg lið Valencia og Sevilla eiga heimaleiki í spænska boltanum í dag og þurfa á sigrum að halda í fallbaráttunni.

Batnandi gengi undanfarinna vikna hefur haldið liðunum frá fallsvæðinu en Valencia er aðeins fjórum stigum fyrir ofan fallsæti sem stendur, einu stigi á eftir Sevilla.

Þau taka á móti Alavés og Rayo Vallecano sem eru á svipuðu reiki í afar þéttum fallbaráttupakka.

Villarreal er í góðri stöðu í meistaradeildarbaráttunni og fær tækifæri til að bæta hana enn frekar á heimavelli gegn fallbaráttuliði Elche.

Getafe og Real Betis eigast einnig við, en Betis er í góðri stöðu í baráttunni um evrópusæti - átta stigum frá Meistaradeildinni.

Leikir dagsins
13:00 Villarreal - Elche
15:15 Getafe - Betis
17:30 Sevilla - Vallecano
20:00 Valencia - Alaves
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 31 26 1 4 84 30 +54 79
2 Real Madrid 31 22 4 5 65 29 +36 70
3 Villarreal 31 19 4 8 56 36 +20 61
4 Atletico Madrid 31 17 6 8 51 32 +19 57
5 Betis 31 11 13 7 45 38 +7 46
6 Celta 31 11 11 9 44 40 +4 44
7 Real Sociedad 31 11 9 11 49 48 +1 42
8 Getafe 31 12 5 14 27 32 -5 41
9 Osasuna 31 10 9 12 37 38 -1 39
10 Espanyol 31 10 8 13 37 48 -11 38
11 Athletic 31 11 5 15 33 45 -12 38
12 Girona 31 9 11 11 33 45 -12 38
13 Vallecano 31 8 11 12 29 38 -9 35
14 Valencia 31 9 8 14 34 46 -12 35
15 Mallorca 31 9 7 15 39 48 -9 34
16 Sevilla 31 9 7 15 39 51 -12 34
17 Alaves 31 8 9 14 35 46 -11 33
18 Elche 31 7 11 13 39 47 -8 32
19 Levante 31 7 8 16 35 50 -15 29
20 Oviedo 31 6 9 16 24 48 -24 27
Slapp
banner
banner
banner