Jon Brady þjálfari Port Vale var í sjokki eftir óvæntan sigur gegn Sunderland í enska bikarnum í dag.
Það voru afar fáir sem bjuggust við sigri Port Vale enda vermir liðið botnsæti League One deildarinnar, þeirrar þriðju efstu í enska deildakerfinu. 57 sætum ofar má finna Sunderland, um miðja úrvalsdeild.
„Ég er í sjokki ef ég á að vera heiðarlegur. Við fylgdum leikplaninu og skópum þennan sigur, við vissum að við myndum þjást án boltans og við vissum að slæmar vallaraðstæður myndu hjálpa okkur," sagði Brady.
„Þetta er magnaður sigur sérstaklega ef þið rýnið í leikjaprógramið okkar og í þá staðreynd að okkar bestu leikmenn voru seldir í vetur. 55% af mörkunum okkar og stoðsendingum á tímabilinu voru seld til Luton og Plymouth Við erum að glíma við meiðslavandræði í varnarlínunni en við höfum verið að standa okkur vel síðustu vikur. Við erum núna taplausir í sex leikjum í röð.
„Eftir leikslok spurði ég Granit Xhaka hvort hann hefði nokkurn tímann séð svona slæman völl og ég var hissa þegar hann sagði að þetta væri ekki sá versti sem hann hefði spilað á."
Brady tók við Port Vale í byrjun árs og er liðið búið að vinna 6 leiki af 14 undir hans stjórn.
Athugasemdir

