Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   sun 08. mars 2026 18:47
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Bremen reif sig úr fallsæti - Jafnt í Hamborg
Mynd: Werder Bremen
Mynd: EPA
Það fóru tveir leikir fram í efstu deild í Þýskalandi í dag þar sem Werder Bremen stökk úr fallsæti með frábærum sigri í Berlín.

Union Berlin náði forystunni snemma leiks en missti svo András Schafer af velli með beint rautt spjald skömmu síðar.

Tíu leikmenn Union réðu engan veginn við gestina frá Bremen, sem skoruðu tvö mörk fyrir leikhlé og innsigluðu svo sigurinn með tveimur mörkum til viðbótar í síðari hálfleik.

Þetta er annar sigurinn í röð hjá Bremen og er liðið með 25 stig eftir 25 umferðir, einu stigi fyrir ofan St. Pauli í fallsæti.

St. Pauli náði jafntefli á heimavelli gegn sterku liði Eintracht Frankfurt í dag. Heimamenn vörðust gríðarlega vel og fengu að lokum hættulegustu færi leiksins, en hvorugu liði tókst að skora í afar lokuðum slag.

Frankfurt hélt boltanum nánast allan leikinn en fann ekki glufur á skipulagðri vörn heimamanna í Hamborg. St. Pauli er í fallsæti á markatölu, jafnt Mainz og FC Köln á stigum.

Frankfurt er aftur á móti í baráttu um evrópusæti fyrir næstu leiktíð.

Union Berlin 1 - 4 Werder
1-0 Derrick Kohn ('18 , víti)
1-1 Olivier Deman ('31 )
1-2 Jens Stage ('36 )
1-3 Marco Grull ('66 )
1-4 Patrice Covic ('94)
Rautt spjald: Andras Schafer, Union Berlin ('19)

St. Pauli 0 - 0 Eintracht Frankfurt
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 30 25 4 1 109 29 +80 79
2 Dortmund 30 19 7 4 61 31 +30 64
3 RB Leipzig 30 18 5 7 59 37 +22 59
4 Stuttgart 30 17 5 8 62 42 +20 56
5 Hoffenheim 30 16 6 8 59 44 +15 54
6 Leverkusen 30 15 7 8 60 41 +19 52
7 Freiburg 30 12 7 11 44 48 -4 43
8 Frankfurt 30 11 9 10 55 57 -2 42
9 Augsburg 30 10 6 14 38 54 -16 36
10 Mainz 30 8 10 12 36 45 -9 34
11 Union Berlin 30 8 8 14 34 52 -18 32
12 Köln 30 7 10 13 44 51 -7 31
13 Gladbach 30 7 10 13 36 50 -14 31
14 Hamburger 30 7 10 13 33 48 -15 31
15 Werder 30 8 7 15 35 53 -18 31
16 St. Pauli 30 6 8 16 26 51 -25 26
17 Wolfsburg 30 6 6 18 41 66 -25 24
18 Heidenheim 30 4 7 19 33 66 -33 19
Slapp
banner
banner