Hinn 77 ára gamli Neil Warnock tók við sem stjóri Torquay í utandeildinni á Englandi til bráðabirðga á dögunum. Liðið hefur nælt í eitt stig úr tveimur leikjum undir hans stjórn.
Liðið tapaði 3-0 gegn Ebbsfleet í gær en hann sló á létta strengi eftir leikinn. Tottenham hefur verið í miklum vandræðum en hann sagði að Lundúnafélagið hefði átt að nýta sína krafta.
„Ég er ánægður að ég verð ekki lengi hérna. Ég nýt þess að borða fyrir leik og sitja og horfa á stjórann öskra nokkrum sinnum," sagði Warnock.
„Tottenham hefði átt að taka mig er það ekki? Þetta færir þér fyrirsögn."
Athugasemdir

