Barcelona er 2-0 undir í einvíginu gegn Atletico Madrid eftir tap á Nývangi í kvöld.
Atletico fékk aukaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks en Pau Cubarsi fékk rautt spjald fyrir brot á Guliano Simeone. Julian Alvarez skoraði glæsilegt mark úr aukaspyrnunni og kom Atletico yfir.
Atletico fékk aukaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks en Pau Cubarsi fékk rautt spjald fyrir brot á Guliano Simeone. Julian Alvarez skoraði glæsilegt mark úr aukaspyrnunni og kom Atletico yfir.
Thierry Henry, fyrrum leikmaður Barcelona og sérfræðingur á CBS, var ekki á þeirri skoðun að Cubarsi hafi átt að fá rautt spjald.
„Afsakið mig, fyrir mér er þetta ekki rautt spjald. Ég skil reglurnar, aftasti maður og rænir honum upplögðu marktækifæri. Hann er ekki með fulla stjórn á boltanum og það er enn svolítill spölur í markið," sagði Henry.
„Ertu viss um að hann skori? Ég er ekki sannfærður. Fyrir mér er þetta gult spjald, ekki rautt. Um leið og þú rekur hann af velli breytir þú leiknum algjörlega. Þú þarft að vera 100% viss í Meistaradeildinni. Ég held að dómarinn hafi verið of fljótur á sér þarna."
La bola se le queda atrás y Cubarsi pega con la pierna con la que Giuliano intenta arrastrar el balón.
— LUIS FCO. (@lximenez) April 8, 2026
Cumple con las características para ser roja ? pic.twitter.com/LS6ocePZCn


