Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   mán 09. mars 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Flick svarar gagnrýni: Háa línan virkar
Mynd: EPA
Hansi Flick þjálfari Barcelona hefur fengið mikla gagnrýni fyrir að spila með gríðarlega háa varnarlínu.

Hátt hlutfall markanna sem Barcelona fær á sig kemur eftir háar sendingar eða stungusendingar innfyrir varnarlínuna en Flick ætlar ekki að breyta um taktík.

„Fólk kennir varnarlínunni um en það er ekki rétt. Það skiptir í raun ekki svo miklu máli hversu há varnarlínan er eða hverjir skipa hana. Það sem skiptir máli er pressan frá sóknarlínunni og miðjumönnum. Háa varnarlínan virkar bara ef restin af liðinu sinnir pressunni," segir Flick.

Ange Postecoglou fékk einnig mikla gagnrýni fyrir að spila með gríðarlega háa varnarlínu áður en hann var rekinn frá Tottenham.

„Þetta er partur af leikstíl Barcelona, þetta er í erfðaefni félagsins. Ég er ekki kominn hingað til að breyta erfðaefninu. Það síðasta sem ég vil er að vinna leiki 1-0 með marki eftir skyndisókn."

Barcelona er með fjögurra stiga forystu á toppi spænsku deildarinnar og mætir Newcastle United í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Spánarmeistararnir eru hins vegar úr leik í Konungsbikarnum eftir naumt og umdeilt tap gegn Atlético Madrid í undanúrslitum.
Athugasemdir
banner
banner