Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   fös 10. apríl 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Besta deildin fer af stað
Mynd: Víkingur - Hörður Ágústsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stundin er að renna upp. Nýtt tímabil í Bestu deild karla fer af stað í kvöld þegar Íslandsmeistarar Víkings R. taka á móti sínum helstu keppinautum frá því í fyrra í risaslag í opnunarleik ársins.

Ótrúlega öflugt lið Víkings mætir Breiðabliki í risaslagnum eftirvænta, en það leikur enginn vafi á því að Víkingar eru með besta leikmannahóp í sögu íslenska boltans. Spurningin er hvort þeim takist að nýta gæðin sín til að standa uppi sem sigurvegarar á ný.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.

Auk stórleiksins í Fossvogi eru einnig leikir í Lengjubikar karla. Keppt er í Vesturbæ, Breiðholti, Kópavogi, Úlfarsárdal og Akranesi.

Besta deildin
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

Lengjubikar karla - B-deild, riðill 1
19:00 KV-Fjölnir (KR-völlur)
20:00 Kári-Kormákur/Hvöt (Akraneshöllin)

Lengjubikar karla - B-deild, riðill 2
19:00 Sindri-Árbær (Domusnovavöllurinn)

Lengjubikar karla - B-deild, riðill 3
20:00 Ýmir-Þróttur V. (Kórinn)

Lengjubikar karla - C-deild, riðill 4
20:00 Úlfarnir-Elliði (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner
banner