Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 12. maí 2026 11:21
Elvar Geir Magnússon
Óttast að það verði þreytumerki á leikmönnum á HM
Virgil van Dijk.
Virgil van Dijk.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Maheta Molango, formaður leikmannasamtakana, segir að leikmenn hafi rætt það að grípa til aðgerða þar sem þeim sé ýtt að þolmörkum með gríðarlegu leikjaálagi.

Molango varar við því að þreytumerki muni sjást á leikmönnum á HM í sumar og þeirra bíði erfiðar aðstæður á meðan enginn virðist hlusta á áhyggjur þeirra.

„HM ætti að vera hápunktur draums en raunveruleikinn er sá að þetta verður keppni þar sem hinir hæfustu ná að lifa af. Það á ekki að vera þannig," segir Molango.

„Leikmenn fá mikið greitt og eru ofurhetjur en það á ekki að þýða að þeim sé ýtt að þeim þolmörkum sem manneskjur höndla. Leikmönnum er stefnt í hættu og það hefur áhrif á gæðin í fótboltanum sem fólk borgar háar fjárhæðir fyrir að horfa á."

Samkvæmt gögnum Opta eru nítján úrvalsdeildarleikmenn sem hafa þegar spilað yfir 4 þúsund mínútur í öllum keppnum á leiðinni á HM. Hollenski varnarmaðurinn Virgil van Dijk hjá Liverpool er efstur á þeim lista með 4.761 mínútu spilaða á tímabilinu.
Slapp
banner
banner
banner