Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   mán 13. apríl 2026 19:27
Ívan Guðjón Baldursson
Szoboszlai: Breytir öllu að spila á Anfield
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Ungverski miðjumaðurinn Dominik Szoboszlai hefur trú á möguleikum Liverpool gegn Evrópumeisturum Paris Saint-Germain er liðin mætast í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld.

Liverpool var talsvert lakara liðið í fyrri leiknum í París og urðu lokatölur 2-0. Szoboszlai og félagar voru heppnir að tapa ekki stærra.

   12.04.2026 14:20
Englandsmeistararnir hafa trú gegn PSG


„Það breytir öllu að spila á Anfield á morgun. Við höfum oft séð þetta á síðustu árum, það er allt annað að spila á heimavelli. Allur leikvangurinn kveikir á sér og tilfinningin er ótrúleg, við þurfum ekki meiri hvatningu heldur en þetta," sagði Szoboszlai, sem hefur verið einn af allra bestu leikmönnum Liverpool á tímabilinu, á fréttamannafundi í dag.

„Ég hef fulla trú á að við getum snúið þessu við, ég veit hvers við erum megnugir. Við erum með ótrúlega mikil gæði í liðinu. Við sýnum þessi gæði kannski ekki í hverri viku en við þurfum að gera það á morgun."

Szoboszlai var einnig spurður út í atvik sem átti sér stað eftir 4-0 tap Liverpool á útivelli gegn Manchester City í enska bikarnum um síðustu helgi. Hann gekk til stuðningsmanna Liverpool eftir tapið og uppskar baul. Ungverjinn svaraði því með að klappa kaldhæðnislega og ögra sínum eigin stuðningsmönnum þar til Federico Chiesa sannfærði hann um að hætta.

„Það var kannski einhver misskilningur á milli mín og stuðningsmanna, ég meinti þetta ekkki á slæman hátt," svaraði Szoboszlai. „Stuðningsmenn skipta miklu máli fyrir þetta félag og ég veit að félagið skiptir miklu máli fyrir stuðningsmennina. Við gerum allt fyrir stuðningsmenn. Ef þetta er misskilningur þá biðst ég afsökunar."
Slapp
banner