Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
   sun 15. febrúar 2026 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Býst við meiru frá Sancho
Mynd: EPA
Mynd: Aston Villa
Unai Emery þjálfari Aston Villa býst við meiru af Jadon Sancho sem hefur verið mikið í byrjunarliðinu á nýju ári, en hann fékk að spila síðasta stundarfjórðunginn í tapi liðsins gegn Newcastle í enska bikarnum í gær.

Hinn 25 ára gamli Sancho er hjá Aston Villa á lánssamningi frá Manchester United. Hann er aðeins búinn að skora eitt mark og gefa eina stoðsendingu í 25 leikjum í öllum keppnum.

Stoðsendinguna gaf hann í jafntefli gegn Bournemouth um síðustu helgi.

„Hann er að verða betri og betri og vonandi getur hann hjálpað okkur á næstu mánuðum. Ég býst við meiru af honum útaf því að ég er jákvæður, vonandi mun hann skila því til okkar," sagði Emery í vikunni.

Hann ræddi einnig um aðra leikmenn liðsins og viðurkenndi að það væri pressa á ákveðnum leikmönnum til að fylla í skörðin fyrir lykilmenn Aston Villa sem eru á meiðslalistanum.

„Douglas Luiz, (Amadou) Onana, (Ross) Barkley og (Lamare) Bogarde fá núna þá miklu ábyrgð sem fylgir að fylla í skarðið fyrir meiddu leikmennina. Það eru þrír leikmenn meiddir sem hafa verið að gera góða hluti með liðinu á undanförnum árum.

„Onana þarf að halda meiri stöðugleika í sínum frammistöðum og reyna að forðast meiðsli. Hann getur verið gríðarlega mikilvægur fyrir okkur þegar hann er heill heilsu.

„Við þurfum á Luiz að halda eftir eins og hálfs árs fjarveru frá okkur. Hann þarf að leggja mikla vinnu á sig til að finna aftur sitt besta form.

„Barkley er stórkostlegur fótboltamaður sem er að jafna sig eftir meiðsli. Hann er að finna sjálfstraustið sitt aftur og verður mikilvægur fyrir okkur.

„Bogarde er mjög fjölhæfur og alltaf hjálpsamur. Það eru stórir kostir."

Athugasemdir
banner
banner
banner