Celta 1 - 3 Freiburg (1-6, samanlagt)
0-1 Igor Matanovic ('33 )
0-2 Yuito Suzuki ('39 )
0-3 Yuito Suzuki ('50 )
1-3 Williot Swedberg ('90 )
0-1 Igor Matanovic ('33 )
0-2 Yuito Suzuki ('39 )
0-3 Yuito Suzuki ('50 )
1-3 Williot Swedberg ('90 )
Freiburg flaug inn í undanúrslit Evrópudeildarinnar í fyrsta sinn í sögu félagsins er það vann frábæran 3-1 útisigur á Celta Vigo og samanlagt 6-1 í einvíginu.
Þýska liðið hefur tekið miklum framförum síðustu ár og komist tvisvar í 16-liða úrslitin en það setti met með frammistöðu sinni í kvöld.
Igor Matanovic skoraði stórbrotið mark á 33. mínútu. Boltinn datt fyrir hann rétt fyrir utan teiginn og tók hann viðstöðulaust skoti sem hafnaði efst í vinstra hornið.
Yuito Suzuki skoraði tvö mörk fyrir Freiburg undir lok fyrri og í byrjun síðari hálfleiks. Fyrra markið kom á 39. mínútu er hann fékk boltann vinstra megin í teignum og stýrði honum í hægra hornið.
Annað markið gerði hann á 50. mínútu eftir mikinn darraðardans í teignum.
Svíinn Williot Swedberg skoraði eitt sárabótarmark á lokamínútunum. Annars var þetta stórkostleg frammistaða hjá Freiburg yfir þessa tvo leiki og undanúrslitasætið vel verðskuldað.
Freiburg spilar við Real Betis eða Braga í undanúrslitunum, en staðan í einvígi þeirra er 1-1.


